Þótt undarlegt megi virðast, þá stóð hún sig mjög vel í gær. Lagið var frábært hún söng það vel og það besta var að hún samdi það sjálf! Þetta lag var ótrúlega fallegt, þó ég skildi ekki mikið, lagið var á spænsku.
Það eina sem fór í taugarnar á mér, var… já getiði nú, fötin hennar. Eða væri ekki betra að segja búiningurinn hennar. Rautt kruklað pils, skósítt og girt upp að nafla og svo var hún í svörtum brjóstahaldara. Þessi manneskja kann ekki að klæða sig.
En ykkar álit, hvernig fannst ykkur hún í gær. Mér fannst hún góð (fyrir utan þetta horror átfitt).
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.