Drama, drama, drama.
Þetta eru allt grenju skjóður, það var farið að gráta fyrir báða bardagana! Og svo eru þeir allir að væla um hvað það er erfitt að vera í burtu frá fjölskyldunni sinni. BORING! það nennir enginn að horfa á það þetta eiga vera harðir gaurar að lemja hvorn annan í stöppu, ekki leðja sem er mótuð rétt áður en það er farið inní hringinn!

En nóg með það, Djöfulins snilld.
Mike sagði: “He knows he's fighting a killer!”
Svo rústar K9 honum! Var það ekki líka Mike sem sagði: “Just a little time away from my family is hard.”? er þetta þessi “killer”, brotnar niður vegna þess að fjölskyldan hanns er ekki hjá honum. Kéllinga væl og ekkert annað!

Og svo hinn bardaginn. Þetta var sko bardagi! Þetta var svooo tæpt. En persónulega fannst mér Bravo betri. Mér fannst hann sækja meira á, og hafa fleyri högg, en þeir sína bara áhugaverðustu höggin þannig það er ekki hægt að meta það sem okkur er sínt. Plús það að ég hef ekki hunds vit á hnefaleikum. En snildar bardagi, þetta var eithvað til að horfa á!