Eskimo og Sirkus eru nú að vinna að raunveruleikaþáttum um íslenskrar fyrirsætur. Munu þættirnir spanna ferlið frá því að stúlkurnar sækja um og allt fram að keppninni sem fram fer 24. nóvember.

Valin verður Ford stúlkan 2005 og Andlit KEA-Skyrs. Einnig verður sigurvegaranum fylgt eftir í keppnina Supermodel of the World, sem fram fer 13. janúar 2006 í New York.

Þættirnir hefja göngu sína 5. nóvember og eru alls 5 talsins. Þar mun fólk geta skyggnst inn í heim tísku-og auglýsinga bransans hér heima.

Leitin hefst núna sunnudaginn 16. október hjá Eskimo að Hverfisgötu 103 milli 13.-14.30.- Strax verður byrjað að mynda stúlkurnar í valinu og þeim svo fylgt eftir hvert fótmál í æfingum og undirbúningi að keppninni.

Þetta var á Eskimo.is… hvað haldið þið, verður þetta annað stórslys á borð við Íslenska bachelorinn og Ástarfleyið?