Það er stundum sem mjög “fyndið” fólk kemur inn á þetta áhugamál til þess eins að eyðileggja bandaríska raunveruleikaþætti fyrir öðrum. T.d. með því að skrifa kork um sigurvegarann, eða svara korki eða grein um þáttinn með spoiler.
Þetta hefur ekki eyðilagt mikið fyrir mér, þar sem ég fylgist ekki með þessum tilteknu þáttum, en mér finnst samt að stjórnendur mættu vera duglegri að kíkja hingað inn og eyða svörum eða korkum sem innihalda spoilera.