Hann var rekinn fyrstur vegna þess að það var jafnt í hópunum og Ogakor vissi að hann hafði eitt gamalt atkvæði gegn sér. Þegar þau voru að stökkva ofan af klettinum þá spurði Tina nefnilega um þegar Debb var rekin og spurði hvern hún hefði kosið. Jeff vildi ekki segja en Kimmi sagði strax að Debb hefði kosið Jeff.
Þannig vissu Ogakor að Jeff færi ef þau öll kysu hann en Kucha kysu öll einhvern sem hafði engin atkvæði gegn sér. Eina fólkið sem hafði gömul atkvæði gegn sér í Ogakor voru Keith og Jerri. Keith vann immunity (þegar hann stóð á staurnum) og þau pössuðu sig bara að láta Kucha ekki sjá að þeim líkaði illa við Jerri. Colby reyndi líka að vera leiðinlegur til að þau öll kysu hann og það gekk. Colby hafði engin gömul atkvæði á bakinu og vann því Jeff sem var með eitt.