Guð minn almáttugur. Hefur einhver séð þáttinn Allt í drasli á Skjá einum. Þetta er einn ömurlegasti þáttur sem ég hef á ævinni séð. Hann gengur út á gjörsamlega ekki neitt og þetta er leiðinlegt fólk sem er með hann og hver fékk þá hugmynd að það væri gaman að fara og sjá hver ógeðsleg svín fólk getur verið og hvað það er skítugt á heimilunum. Ég veit ekki um NEINA lifandi sálu sem fílar þennar ömurlega þátt. Ég legg til að hann verði bara einfaldlega fjarlægður af dagskrá Skjás eins, ÞETTA FLEKKAR ORÐSOOR STÖÐVARINNAR!