Eftir að hafa fylgst með þessari séríu þá verð ég að segja að Ami sé klókasta manneskjan, hún hefur náð að halda konunum saman, hún passar að móðga engan í myndavélina eða segja frá hennar áætlunum eins og johnny “fairplay” gerði hér áður og er hún í skugganum.
Ég hef ekki séð neinar konur vilja reka Ami úr því að hún fer í taugarnar á þeim, bara hjá köllunum því að hún hafði völdin.
Eins og í þættinum í gær þegar það var spurt um eyjuna og sá sem hafði rétt átti að kveikja í kyndil hjá hinum og við það kom upp leiðindi og áttuðu sumar á sig hvar í goggunarröðinni þær voru og ég held að Ami hafi vísviljandi svarað öllu röngu svo hún myndi ekki hafa einhverja upp á móti sér. Núna er t.d. stríð milli Scout og Jean held ég að hún heiti aðallega út af þessu. Ég sé að Ami komist í top 2, hún er líkamlega sterkust af konunum og klárlega með allt á hreinu.
//Skari