ég veit ekki hversu margir hafa tekið eftir því en ég var að skoða myndbönd mánaðarins (fyrir apríl) og eins og venjulega voru myndir af frægu fólki þegar að það var lítið, sem mér finnst bara nokkuð sniðug hugmynd.
En þegar að ég var að fletta í gegnum þetta sá ég mynd af persónu nokkri úr Survivor og fyrir neðan stóð nafnið á þessari honum/henni.
Ég er 100% viss um að þetta sé sú/sá sem að vann survivor 2 því annars tilhvers að hafa hann/hana þarna???
Mér finnst þetta engan veginn nógu sniðugt hjá þeim sem búa til þetta blað og ég er frekar fúll út í þá.