Það er mjög líklegt að þeir reyni að hafa alla þjóðfélagshópa með. Ef þetta væri bara hópur af 20 til 25 ára fallegu fólki myndu færri horfa. Fólk verður að trúa því að það sjálft gæti verið í þættinum og unnið milljónina. Þess vegna verður að vera “venjulegt” fólk í þættinum. Þverskurður af þjóðfélaginu. Hins vegar var einhver að tala um að í Survivor II sé flest fólkið aðeins myndarlegra en var í Survivor I. Ég er ekki frá því að þetta sé satt en ég er svo sem ekkert að kvarta :)