Þetta er mitt álit á úrslitunum og úrslitaþættinum.

Þetta var náttúrlega bara heimska af Jennu að reka Rupert hún hefði tekið áhættu, en hún átti enga von í framhaldinu. Með Ruperti átti hún möguleika. Það hefði getað gerst að Boston Rob hefði dregið bláa steininn. Mér finnst hún hefði átt að gera þetta því Rupert var búin að veiða ofan í hana og gera margt margt fleira fyrir hana.

Af hverju gerðu Boston Rob og Amber ekki samning í loka friðhelgiskeppninni. Af hverju voru þau að pína sig áfram. Þau voru búin að vera par í 30 og eitthvað daga og treystu ekki hvor öðru. Ég meina það.

En ég skil Kathy vel að velja Boston Rob í endann. Þau eru gamlir vinir voru líka saman í Survivior Marquesas.

Big Tom var líka svalur þegar hann þóttist ætla taka í hendina á honum en kippti heni frá og sagði: “Ég féll eitt sinn fyrir Satan, ég ætla ekki að gera það aftur.”

Alicia var líka fjandi köld þegar hún sagðist ekki rjúfa bandalagseiðinm.

Þetta er alla vegna mitt álit. Ég hvet ykkur til að skrifa ykkar álit í álit.