Settist fyrir framan sjónvarpið í kvöld og skipti yfir á David Letterman á Sýn, er mér þá ekki strax tilkynnt um að viðtal verði við sigurvegara Survivor og áður en ég fæ rönd við reist er búið að segja nafnið á manneskjunni. Ég veit að þetta er önnur sjónvarpsstöð, en það mætti halda að það væri enginn að vinna þarna. Er þetta fólk alveg galtómt? Nú er a.m.k búið að eyðileggja Survivor fyrir mér. Takk kærlega. Hefði ekki verið hægt að hafa aðvörun á skjánum? Ég veit svo sem ekkert hvort hún kom í upphafi þáttar, ég sá ekki byrjunina, en þetta er samt fyrir neðan allar hellur. Samt kemst þetta ekki með tærnar þar sem Skjár 1 er með hælana hvað varðar svona klúður. Mér fannst alveg hysterical þegar þeir sýndu þátt sem tilkynnt hver varð hlutskörpust í nýja Bachelor áður en byrjað var að sýna þáttaröðina. Það var engin aðvörun, ekkert. Og þetta er þáttur sem er á þeirra eigin stöð. Talandi um að skjóta sig í fótinn.