'Eg er samt fúll yfir að hann sé farinn því hann er einn af fáum “alvöru” spilurum sem er virkilega að pæla í því hvað hann er að gera. 'Olíkt Jennu, Rupert, Big Tom, og svörtu stelpunni(af hverju man ég aldrei hvað hún heitir…. Já akkúrat hún segir aldrei neitt við myndavélina) sem halda bara að ef þau halda tryggð við Boston Rob að þá eigi hann eftir að taka þau með sér.(djöfull vona ég að þessu fjögur vakni og oppni augun-HANN MUN TAKA AMBER!! - það er augljóst). En mér fannst samt best að Lex skyldi alveg trompasst og vera geðveikt móðgaður þegar Rob sagði að hann væri að fara því það var nákvæmlega það sama og Lex var búinn að gera bæði við Ethan og Jerry og varð sýðan brjálað móðgaður þegar það sama var gert við hann.

Nú er bara að vona að Kathy rífi sig uppúr þessu væli og reyna að setja smá líf í þetta.

ÞAð var samt stjarnfræðilega heimskulegt að halda Amber í staðinn fyrir Jerri(sem var fulkomin bandamaður) Þó maður getur kannski verið voða vitur af því maður er búinn að sjá hvað er búið að vera að gerast í öllum tribe-unum en ekki LEx og Kathy þá að halda inni manneskju sem er í örðum tribe á kostnað sinn eigins í von um það að B. Rob….BOSTON ROB . Bjargi þeim. Það vissu allir að ROb og Amber væri mjög náinn.

Svo ég snú mér nú aftur að Jennu og Rupert. DAm þau eru vitlaus.
ÞAu eru alveg hörð á því að halda trúnaði við Chapera hópinn og reka út alla í moga moga en hvað í andskotanum halda þau að gerist þegar það er búið að reka alla úr moga moga. Þá eru þau auðvitað næst og síðast þegar ég gáði voru engin verðlaun fyrir 5-6 sætið.

Djö… vona ég að einhverjir af þassu fólki fatti að ef þau gera ekki neitt eru þau nú þegar búinn að færa B ROB eða AMber sigurinn á silfurfati.


Það sem mér finnst líka vanta er að það sú fleiri með eintal við cameruna um sína egin leikaðferð einsog Jon og Rob(hin) gerðu svo vel í seinnustu þáttaröðunum. Þá vissi maður nákvæmlega hvaða “evil” plot þeir voru með í gagni allan tíman. ÞEir einu sem eru að gera þetta núna er B ROB, amber, Kathy og LEx. ÞAu eru virkilega að segja áhorfendanum frá plotunum sínum og það er einsog allir hinir séu ekki með neitt plot fyrir sig að vinna miljónina og þetta eiga að heita ALL-STARS.

Jæja ég var allaveganna mikil Rupert maður hérna einu sinni(hann er fín gaur og allt það) en hann er bara ekki góður að spila leikinn þó hann sé góður að synda og góður að veiða er það bara ekki nóg til að vinna þennan leik.

Jæja ég vildi nú bara koma þessu ltila á framfæri með von um það það komist einhver almenilegur hasar í þetta spil.