Hvenær er samruninn? Ég hef verið að hugsa, það er búið að koma svo mikið nýtt í þessari þáttaröð að ég yrði ekki hissa ef að það yrði enginn samruni. En hvernig getur það gengið að hafa engan samruna. Það hafa einhverjir verið að halda að það verði engin en ég veit ekki hvernig það á að ganga með tvo á hvorri eyjunni.

Svo var ég að heyra að það ætti að vera þáttur núna á mánudaginn þar sem það væri bara farið yfir atburði úr síðustu þáttum. Er það satt eða hvað. Hefur ekki verið svoleiðis þáttur í hverri serju. Ég vona allavega að það verði ekki svoleiðis því að mér finnst þeir leiðinlegir.

Svo er eitt enn. Hver haldiði að fari næst og hver haldiði að vinni?? Ég held að Rupert fari næst ef þau vinna ekki en annars veit ég ekki hver á að vinna. Ég held nefnilega ekki með neinum aldrei þessu vant.

En viljið þið svara þessu því að mig langar að vita hverjum þið haldið með og spá í hvort að það sé einhver hér sem allir annaðhvort hata eða halda rosalega uppá (eins og Rupert og Jon í fyrra)
<br><br>—–
Vissu þið að tölvuleikir framkalla þrisvar sinnum meira ánægjuhormón en kókaínvíma …

<a href="http://www1.batman.is/ut.php?id=38199“><font color=”green“>SMOKE </font><b><font color=”black">KILLS</font></b></a
Shadows will never see the sun