Hvað er málið með þetta Rubert æði. Ég þoli hann ekki í hreinskilni sagt. Ég hata hann kannski ekki alveg en ég held að hann hafi bara búist við því að vinna. Hann var alltaf að tala um hvað allir voru latir og hann væri alltaf að vinna sjálfur þó það sé kannski rétt. En það þýðir þó ekki að hann hafi átt meiri rétt á að vera þarna en aðrir. Hann lét það bara svo mikið í ljós um að hann gerði allt saman. Hann veiddi sem var heppni en það þýðir þó ekki að ef maður veiði fisk þá eigi maður að fá að vera lengur þó þetta sé dálítið farið að snúast um það. Ég held að Rubert hafi bara verið svona lengi vegna þess að hann var með þeim einu sem nennti að veiða sem var náttúrulega gott. En hann hafði sínar skoðanir um hver ætti að fara næst og bla…..
Ég er eiginlega bara fegin að hann fór. Það er alveg rétt að hann var mesta ógnin, því flestir stóðu með honum.