Hvað var eiginlega málið með síðasta þátt?? hvað var fólk að hugsa? ég veit að þetta er leikur um mikla peninga en þetta var eitthvað aumingjalegasta sem að ég hef séð gert í þessum þætti. Að reka Rubert er það heimskuelgasta sem gert hefur verið og það sem kom mér mest á óvart var það að Lil kaus hann líka!! ég va hreint út sagt hneyksluð. Rubert er sá sem hefur unnið allra mest, verið allra manna hreinskilnastur og bestur við alla í kringum sig. Hann hefur séð hinum þáttakendunum fyrir mat allan tíman. Án hans hefði þau soltið eða allt að því. Já eins og ég sagði áður þá kom Lil mér líka á óvart, ég var ánægð þegar hún koma aftur inn í þáttin því að hún var alltaf heiðarleg, góð við alla og reyndi sitt besta en núna er ég sko hneyksluð á henni. Hún sveik þann sem að stóð alltaf með henni. Ég héllt að hún myndi ekki ljúga að honum eins og hann treysti henni því að hún var svikin áður en að hún var rekin út í fyrsta skipti og henni þótti það sárt….

núna er ég sko bitur og meigi survivor þáttakendurnir svelta án Ruberts!! :/