í gær gerðist sá sorgar atburður að hún Christy sem ég tel vera hinn eina sanna survivor var rekinn í burt í varðeldinum.eins og felstir survivor aðdáendur vita eða eiga að vita þá er hún Christy heyrnalaus. Það hlýtur að vera erfitt að vera heyrnalaus í survivor, t.d. þegar það tók að myrkva þá gat hún ekkert gert því hún gat ekki beitt varalestrarkunnáttu sinni. Mér finnst hann rob koma illa fram við hana heldur að hann getir ráðið yfir henni. Christy átti skilið að vinna stóra pottinn í survivor. Ef að peningarnir hefðu runnið til hennar hefðu þeir án efa farið í gott málefni eins og t.d. kennsla handa heyrnalausum börnum sem er einmitt oft lagt í einelti víða í skólum vegna þess að þau geta ekki heyrt það sem hin börnin eru að segja. Christy sannaði það að heyrnalausir eru ekki verra fólk en aðrir og geta jafnvel verið skondnir. Ef að Christy hefði orðið the Sole Survivor hefði mikilvægt skref verið stigið í jafnréttindabaráttu heyrnaskertra og kannski hefði George Bush horft á seinasta þátt survivor og séð hvar hún hefði tekið við verðlaununum. Þá hefði hann eflaust hugsað, já heyrnarlausir eru bara nokkuð nettir! Þá hefi hann hugsanlega ákveðið að hætta stríðrekstri sínum og vopnakskaki í víðri veröld og ákveðið að leggja þá fjármuni sem fara í vopnaskakið í málefni heyrnalausra í staðinn. Og hverjum er það að þakka? Jú henni heyrnaskertu Christy. Lokaniðurstaðan er sú að Christy var sú sem verðskuldaði verðlaunin.