Lokaþáttur Jæja, nú er komið í ljós hver sigurvegarinn er.

Þátturinn byrjaði með friðhelgiskeppni sem gekk út á að svara spurningnum um hina keppendurna sem höfðu verið kosnir út. Vecepia vann þá keppni, og gerði Kathy þá bandalag við hana, og kusu Kathy og V, Neleh, og Paschal og Neleh kusu Kathy. Þannig að þau fjögur þurftu þá að komast að sameiginlegri niðurstöðu um hver ætti að fara, þau komust ekki að neinni sameiginlegri niðurstöðu, þannig að fór það þannig að Paschal, Neleh og Kathy þurftu að draga einhverja steina til að ákveða hver ætti að fara, sá sem myndi draga fjólubláan stein þyrfti að fara, og Paschal dró þann fjólubláa.

Næsta dag/nótt, voru þær þrjár vaktar klukkan 3 am og þurftu að koma einhverjum bát saman og sigla að strönd þar sem þær máluðu á sig tattoo og fóru í einhverja hreinsum þar sem þær helltu yfir sig einhverju gulu. svo gengu þær eftir stíg þar sem kyndlar allra gömlu meðlimana voru. svo komu þær að loka friðhelgiskeppninni sem var jafnvægiskeppni. þar datt kathy, og V gerði þá samning við Neleh, að hún myndi gefa henni friðhelgina ef hún myndi velja sig í final two, og Neleh samþykkti það.
Og Neleh stóð við það og kaus Kathy í burtu.

Svo var gengið til kosninga, um hver myndi fá milljónina.
John, Robert, Sean og Tammy kusu Vecepia
Kathy, Paschal og Zoe kusu Neleh.

Þannig að Vaacepia vann milljónina.

Mér finnst fínt að V vann milljónina, en mér fannst samt fúlt að Paschal datt út út af þessum steinum, mér fannst það ósanngjarnt gagnvart honum.