Þáttur kvöldsins 17. júní Jæja. Minn uppáhalds karakter sem eftir var, Sean, var rekinn burt. Hann gerði sömu mistök og Rob, hann talaði of mikið. Á “tribal counsilinu” (afsakið slettuna) gróf hann sína eigin gröf með því að fara að rífast við alla hina en hefði hann sleppt því þá hefði Kathy kannski kosið Neleh í staðinn sem ég svo innilega vonaði að myndi gerast. Þegar komið var í ljós að Sean yrði að fara var Neleh bara brosandi og svaka ánægð meðan allir hinir voru mjög miður sín. Þetta sannar bara hvað hún er ótrúlega lúmsk og hún er alls ekki sona mikið ljúfmenni eins og hún er búinn að leika allan tímann. Þó getur maður huggað sig við það að hann Sean vann nú helvíti flottan bíl sem ég væri gjarnan til í að eiga þó ég hafi nú ekki enn fengið bílpróf ;)

Sjálfur held ég að Neleh fari næst og svo Paschal. Þá munu Kathy og Vecepia (V) sitja tvær eftir í úrslitunum. Þar spái ég Vecepiu milljón dollurunum. Hún hefur spilað leikinn vel, haldið sig frá umræðum og rifrildum sem og ekkert gagnrýnt. Áfram V !!

Kveðja,
Crucio
sæll