Einn af verri þáttunum sem ég hef séð var í kvöld. Mjög góður en samt sá versti sem ég hef séð. Ástæða: Alltof mikið af væli í byrjuninni. Vecepia átti afmæli, það var kveikt í trjágrein og hún blés á það! Svo söng Sean afmælissöngin og hún fór að gráta. Allir voru í faðmlögum alltaf. En það var það slæma, hinsvegar var restin ágæt.

Verðlaunakeppnin var köfunarkeppni. 7 keppendur áttu að stinga sér í sjóinn og sækja skeljar, en aðeins 6 skeljar voru á hafsbotninum svo einn datt út. Þetta var gert þar til 4 voru eftir. Þá átti að stinga sér í sjóinn og sækja stein og fara með hann upp á land. Pashchal vann keppnina. Hann fékk að fara á skemmtiferðaskip með heitri sturtu og mat og hann mátti velja einn með sér. Og hann valdi Neleh. Maður fer að halda að hann sé með eitthvað crush í hana. En þau átu vel og komu fín til baka. Neleh var rosa hrokafull með hvað hún var hrein og hárið ilmaði vel. Ekki það snjallasta sem hún gat gert því fólkið varð fúlt út í hana. Sean bókstaflega hatar hana núna, gott hjá honum.

Svo var friðhelgiskeppnin, hún var einum degi fyrr og um kvöldið. Hún byggðist á að koma upp eldi til að poppa poppkorn, og kveikja svo eld á haug af trjágreinum. The general vann keppnina og var þetta mjög mikilvægt fyrir hann, en samt ekki því Tammy hefði örugglega verið rekin í burtu.

En það var eitt sérstakt við þennan þátt. Sean og Vecepia voru farin að tala um að koma Neleh út. Sýnir bara að bandalög haldast næstum alldrei í þessum þætti. Það mun alltaf koma brestur. En persónulega vona ég að Neleh verði rekin út sem fyrst.
<B>Azure The Fat Monkey</B>