Þegar að þessi sería byrjaði þá var Hunter gaurinn sem að ég fílaði í bottn og ég vonaði að hann myndi vinna surviror. Mér fannst Rob vera allveg ógeðslega pirrandi og þoldi ekki Sean því að hann var svo latur. Síðan þegar þeir kusu burt Hunter (þætti 3-4 or some) þá varð ég allveg brjálaður og var allvarlega að spá í að hætta að horfa á þættina.

En síðann þegar að ættbálkarnir voru að sameinast og Rob og Cathy voru send í að éta og það, þá var ég bara farinn að halda með Rob og vonaði að hann myndi vinna miljónina, en aftur varð ég fyrir vonbrigðum en ekki þóg miklum.

Svo í þarseinasta þætti (John) þá byrjaði ég að fíla Sean, aldrei hefði ég trúað því að ég myndi byrja að gera það því að ég þoldi hann ekki en núna er hann bara gaurinn sem að ég held með! Þegar hann kaus John af og sagði “Check mate, you thought you had me” (eða eitthvað álíka) þá fékkk ég bara gæsahúð því mér fannst það svo cool hjá honum.

Síðan í seinasta þætti þegar þeir (sean og pascal eða eitthvað) unnu kókóhnetukeppnina (reward challenge) þá var það allveg satt það sem að V sagði, “Sean deserved it” og að mínu mati þá átti hann það allveg skilið að vinna þessi verðlaun því að hann var allveg á bottninum en hann gafst ekki upp, og núna hefur hann mjög góða möguleika til að vinna (the first black guy :Þ) og ég ættla nú bara að “cross my fingers and hope for the best” :)