Surfvivor The internet Survivor. Ouclick, outspace and outlast. Nú er í gangi internet survivor leikur. Hann er í boði rusl.is og hérna eru leikreglur frá þeim:

“Það er ekki fyrir hvern sem er að ferðast um internetið! Þar leynast víða hættur eins og t.d. tímaþjófar á borð við tilveran.is, vefir eins og mbl.is og hinn stórhættulegi amazon.com sem varla er hægt að sleppa frá án þess að versla.
Rusl.is efnir til keppni um það hver er bestur í að komast af á internetinu. Keppnin fer fram með tölvupóst sendingum og hver sem er sem treystir sér til að senda nokkur email getur verið með.

Fyrirkomulagið er einfalt. Þú skráir þig með því að smella á skráning hér til hliðar. Þar skráir þú nafn þitt, aðrar grunnupplýsingar og góða ástæðu fyrir því að við ættum að velja þig.

Innan skamms verður sendur tölvupóstur til þeirra sem verða með sem inniheldur fyrstu þrautina. Vikulega verða svo sendar út þrautir sem á ekki að taka langan tíma að svara.

Óákveðið er hve margir hefja þátttöku en að lokum stendur einn eftir eins og í öllum keppnum, The internet survivor.”

Sniðuleg leið ef maður vill taka þátt í survivor keppni.
<a href="http://www.rusl.is/beta/index.php?pContent=main"> rusl.is </a
<B>Azure The Fat Monkey</B>