Þá varð samruni í þættinum í kvöld. Hann var dálítið öðruvísi núna heldur en í hinum þáttunum. Einn var valinn úr Rotu og einn úr Maraamu. Semsagt Kathy og Rob. Þau áttu að velja nafn og nýjan fána á nýja ættbálkinn. Solitaru eða eitthvað sem þýðir leynilegt samband við sólina eða eitthvað þannig. Liturinn var bleikur - what da fuck, hvað var það eiginlega. Svo ræddu Kathy og Rob um allt sem hafði skeð og náði Rob Kathy með sér á bandalag.

Allir komu saman á Rotu staðinn, sem mér fannst heimskulegt því Maraamu var mikið flottari staður. Fólkið talaði saman og Rob var að reyna að gera einhvern usla með því að tala við fólk og komu upp um lygar og ljúga mikið sjálfur. Kathy varð paranoia og varð rosa hrædd um að verða rekin. Svo varð hápunktur þáttarins, rifrildið milli Rob og Sean og John. Sean var rosa flottur með ekta gettó style.

Svo kom að Tribal Counsil. Þá tilkynnti Mark Burnett nýtt í leiknum, hægt er að switcha imunityinu sínu til einhvers annars. Cool breyting. En svo var kosið, og fór það þannig að Rob var kosinn í burtu, John fékk nokkur og Zoe 1.

Váááá hvað ég varð fúll yfir að Rob væri rekinn í burtu. Hann er svo cool en hann gróf sína eigin gröf með því tala of mikið. Allar hinar áætlanir hans hafa verið góðar en ekki þessa. Samt varð ég mjög fúll yfir þessu. Hann hefði mátt reynt að fá Neleh, Paschal, Kathy, Sean og V til að kjósa John. Eini sem er virkilega flottur eftir er Sean. En nú held ég bara með Sean og Kathy því þau voru þau einu sem ekki kusu Rob.

PS: Bróðir var að taka upp þáttinn og hætti eftir að það var búið að sýna úr næsta þátti svo ég sá ekki hvað Rob sagði og hvernig allir kusu. Gæti einhver frætt mig um hvað skeði?
<B>Azure The Fat Monkey</B>