jæja, þá.

Ég er alveg forfallinn Survivor-aðdáandi og má alls ekki missa úr einn einasta þátt (þetta er að verða eins og sjúkdómur) en alla vega..

Mér fannst mjög áhugavert að Gabríel hafi verið kosinn burt í síðasta þætti. Hann virkaði svo fínn. En mér varð hugsað til síðust seríu og þar ver Lex, sem ég persónulega fílaði í tætlur, en enginn í Afríku virtist þola, samt komst hann í 3 mann úrslit. Svo núna er næs, rólegur gæi bara rekinn burt og ég bara gapti?!!
Ég skil ekki af hverju þau kusu ekki Sean eða Rob? Ég bara skil þetta ekki.

En á þessu sýnist mér bara að ekki sé allt sem sýnist í “raunveruleika”-sjónvarpinu okkar. Hvað er í “alvörunni” að gerast? Það langar mig að vita, ekki bara það sem framleiðendurnir vilja að ég sjái.

En ég ætla allavega að horfa á þessa seríu og get varla beðið eftir næsta þætti. Hvað segið þið um þetta?
“let's build more cars so we can drive away before we choke…”