Ég var hérna að horfa á þriðja þáttinn af Survivor og sást þá að Neleh var farin að kalla hann Paschal pabba og honum fannst Neleh líkjast svo dóttur sinni og þau voru eitthvað að tala um að það væri erfiðast fyrir þau að vóta hvort annað af eyjunni.
Þá fór ég að hugsa um Survivor 2 : The Australian Outback, og man þá eftir ákveðnum aðilum í þeirri þáttaröð, þeim Rodger Bingham og Elisabeth Filarski;
Rodger var gamall kall og Elisabeth var ung og sæt stelpa. Elisabeth líkti honum við pabba sinn og varðandi Rodger, þá fannst honum eins og hún væri dóttur hans.
Eins og þið sjáið þá er þetta næstum eins dæmi, kannski eru Paschal og Nalah bara að feika þetta samband til að fá meiri athygli því það er staðreynd, Rodger og Elisabeth fengu miklu meiri athygli af þessum “tengslum” við hvort annað. Það gæti alveg verið :)

En hvað um það, ég var bara að pæla svona í þessu.