Sarah Jones Ég hef ákveðið að skrifa um Sarah Jones sem er fallegasta konan í Survivor 4 en einnig mest pirrandi. En hvað um það, best að byrja bara þessa stuttu frásögn um hana og líf hennar:


Aldur : 24

Hjónabandsstaða : Einhleyp

Atvinna : Reikningsframkvæmdarstjóri (account manager, veit ekki hvort að þetta er rétt þýtt)

Heimabær : Juneau, Alaska

Lúxushluturinn : Koddi


Sarah Jones fæddist í Juneau sem er í Alaska. Seinna flutti hún til Napa Valley í Californíu og fór þar í Vintage háskólann þar sem hún var klappstýra öll fjögur árin.
Nýlega vann Sarah sem reikningsframkvæmdarstjóri (veit ekki hvort það er rétt þýtt “acount manager”) fyrir fatafyrirtæki á meðan hún var einnig í lausavinnu sem ljósmyndari. Og í viðbót við það, þá vinnur hún sem fulltrúi fyrir drykkjarfyrirtæki og vinnur einnig á veitingahúsi þar sem hún er gengilbeina. Henni finnst gaman af klettaklifri, dansi og að ferðast í frítíma sínum.
Sarah á eldri systur sem heitir Abby, yngri bróður sem heitir Tay, og eina yngri systir sem heitir Samantha. Sarah er mjög stolt af foreldrum sínum, sérstaklega móður sinni sem sigraðist á brjóstakrabbameini.
Sarah býr í Newport Beach í Californíu með kettinum sínum, henni P'Nut. Hún á afmæli 11. ágúst.

Þá er þessari frásögn lokið, ég vona að þið hafið haft gaman af. En svona í lokin vil ég segja að þessa frásögn fékk ég á http://www.cbs.com/primetime/survivor4/survivors/bios/sarah.shtml, en ég vil vara ykkur við, efst á síðunni er spoiler um hver er búinn að vera votaður út.

Kveðja : Skari2