Fyrir þá sem eru ekki búnir að sjá þátt þessarar viku EKKI LESA LENGRA ef þið viljið ekki vita hvað gerðist í þættinum!!!!!
————
————-
————–
—————
—————-
—————–
——————
——————-

Afhverju í anskotanum var little Kim send heim? Það er Kim Powers. Hún er ekkert búin að gera af sér gagnvart þessu fólki. Hún er ekki einu sinni það sterk að hún sé ógnun. Hún stóð svo til ein og það hefði ENGINN valið hana á endanum hvort sem er. Hversu heimskulegt var að senda hana heim! Og afhverju var Kim Johnson að segja við Teresu að hún myndi kjósa Lex og fara svo á bak við hana? Ég var ekki alveg að ná því. Strákarnir eru miklu betri vinir hvor við annan en við hana. Hún ER bara þarna. Þeir eiga ekkert eftir að hika við að senda hana heim. Það hefði verið mikið gáfulegra fyrir hana að halda stelpunum í meirihluta. Það hefði verið mikið sniðugra, bæði fyrir hana og strákana, að senda Lex heim. Því ekki aðeins er hann umdeilanlegur heldur er hann líka svo mikill keppnismaður að hann á ábyggilega eftir að vinna næstu immunity-keppnir áfram… sem þýðir að hinir verða sendir heim og enn erfiðara að sigra hann. Afhverju í andsk… nýttu þau ekki tækifærið? Hver vill að Lex vinni? Mér finnst hann allavegna ekki eiga það skilið. Ég held með Big Tom og Ethan.

Annars, þá held ég að Teresa verði send heim næst, nema bandalagið þeirra hinna klofni…

Hvað finnst ykkur???

Kveðja,
Divaa