Mig langar að þakka Guði fyrir að aumka sér yfir okkur greyið áhorfendum Survivor með því að reka Frank loksins burt. Ég var, eins og örugglega svo margir aðrir, komin með verk í nýrun í hvert skipti sem ég svo mikið sem heyrði röddina í honum. Og stælarnir við aumingja sæta Brandon. Frank var ekkert nema óendanlega mikil karlremba með hommafóbíu og nöldursýki á háu stigi.. auðvitað eru einhverjir ósammála mér, og eiga rétt á sínu áliti, en hvernig væri heimurinn hefði Frank td. unnið milljónina :/ Jájá, hann á fjölskyldu, blabla.. en ekki segja mér að hann hefði gert neitt óeigingjart við $peningana… ekkert í góðgerðarstarfsemi, nema bara til að láta sjálfan sig líta betur út. Næstur út.. BIG TOM :)