Ég ætla að byrja með því að fagna því að frk. Lindsey sé á bak og burt JIIIBBÍÍ!!. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði að fara þegar ég sá þingið í gær kvöldi. Þetta var svona að jaðra við Ophra Winfrey um tíma, en já nú er hún á bak og burt það er ekkert nema gott um það að segja.

Sá sem var einna skemmtilegastur í gær fannst mér vera Clarence. Það er eitt að vera í Afríku og reyna hafa það gott, þá er eitt sem má ekki missa umfram geðheilsu er húmorinn :) Hann fær hátvísis verlaunin mín (ekki eins og þau séu eh merkileg) En það er nú eitt sem er að brjóta heilan í mér, verður ekkert af sameiningunni? Það lítur út fyrir það að það verði einhver bið á því. Eins og staðan er í dag eru Homminn, Kim og Clarence í ekki bestu stöðunni. Það er margt hægt í þessari stöðu. Ef flokkarnir verða óbreyttir standa Samburu verr að vígi en Boran (mitt álit). Það er nefninlega komið að því að slá þeim öllum saman og sjá hver verður þá “útundan/n”.