Ef það er eitthvað sem er að pirra mig núna eftir breytingarnar á “flokkunum” þá er það grenjuskjóðan hún Lindsey. Hún er sívælandi allan daginn og er bara gjörsamlega óþolandi á öllum sviðum. Það er alveg ótrúlegt hversu umburðarlynd þau hafa verið “vinir” hennar homminn og Kim. Ég hef það sterklega á tilfinningunni að þegar “vinahópurinn” sundrast þá verður hún látin gossa. Hún er ekki á neinn hátt að leggja neitt af mörkum nema leiðindi og tár. Svo tala ég ekki um það að hún er búin að vera með kökk í hálsinum bara síðan úr fyrsta þætti. Ég er með það efst á óskalistanum mínum að hún verði látin fara bara í næsta þætti. Svo er ég með þá hugmynd að láta næstu seríu Survivor gerast einhversstaðar á Grænlandi eða Norður Alaska. Hvað finnst ykkur??