Í seinasta þætti var hinn umdeildi Silas kosinn í burtu, okkur öllum til mikillar ánægju held ég. Ég verð að segja það að ég botna ekkert í þessum gaur og hans aðferð til að vinna leikinn. Þegar hann var kosinn í burtu var hann mjög sár því hann ætlaði sér alla leið og trúði því að honum tækist það. Ég veit ekki um ykkur en mér finnst hann hræðilegast survivor keppandi EVER!!! Hann átti svo ekki skilið að vinna

Í fyrsta lagi þá var hann hræðilegur foringi eða “survivor” Hann og hans fólk voru svo löt og héldu að þau þyrftu ekkert að hafa fyrir neinu. Þau hugsuðu ekki fyrir neinu og eins og sagt var í þættinum þá var eins og þau væru að bíða eftir kraftaverki og þangað til þyrftu þau ekki að gera rassgat.

Í öðru lagi þá er hann bara hræðilega heimskur, ég er bara ekki að ná því hvað það er lítið inní hausnum á honum. Hvernig í ósköpunum gat hann haldið að Frank og co myndu gefa Lindsey atkvæði til að hjálpa þeim en svo ekki segja þeim hvern þau ætluðu að senda burt? Svo sakar hann Frank og co um að vilja bara hefna sín á sér, að þau spili leikinn illa og kallar þau óbeint heimsk. HALLÓ!!! Það er hann sem er heimskur, það var hann sem spilaði leikinn hræðilega illa…hann er bara svo yfirborðskenndur, mikill egóisti og hrokafullur að það hálfa væri nóg.

Og svo í þriðja lagi hvernig hann klúðraði sínum málum eftir skiptinguna. Hann skokkaði á milli fólks, laug og bullaði bara einhvern skít. Hann var svo búinn á því blessaður!

Eins og ég sagði áðan þá finnst mér hann alveg hræðilega ömurlegur keppandi og skil ekki hvernig honum gat fundist hann svona rosalega snjall. Hélt hann að fólk myndi ekki sjá í gegnum sig? Hver hélt hann að hann væri eiginlega?