Þriðji þátturinn var í gær sem var mjög góður þáttur sérstaklega fyrir Boran fans því Boran vann bæði reward og imunity. Verðlaunin voru vatn sem ég held að eigi eftir að hjálpa þeim mikið í næstu keppnum. Líka mikið upp á móralinn. Í reward challenginu áttu þau að ýta risa stóra steininum, og var oft að spá í hvað hann væri þungur því að fólk var að detta niður rétt fyrir framan hann. Gæti verið lífshættulegt. Í imunity var það merkjasendingarnar, það var nú dálítið heimskulegt hjá Samburu að nota tré í sama lit og umhverfið. En hjá Samburu ofþornaðist Lindsey, sem gæti hafa sýnt veikleika hjá henni, þeim hjá eldra fólkinu fannst hún ekki vera nógu sterk svo þau kusu hana. En genaration X kaus Carl því hann þurfti ekki peningana. Í bráðabananum var spurningakeppni þar sem Carl tapaði, sem mér fannst leiðinlegt því ég hélt með eldra fólkinu. Genaration X bara ömurleg að gera ekki neitt. Brenna matinn og láta þau fara eftir vatninu!!! Ég ætla bara að vona að það muni verða rifrildi hjá Gen X svo að þetta verði ekki einhliða.
<B>Azure The Fat Monkey</B>