Jæja þá er fyrsta þættinum lokið..
Strax eru komin leiðindi pæliði í því!
Svarti körfuboltagaurinn er eitthvað heimskur að mínu mati..ég varð alveg brjáluð þegar hann borðaði 2 kirsuber..helv. fíflið..og að opna baunadósina var bara dauðadómur..en hann var heppinn.
Þessi kerling með stóra hárið sem var rekin í burtu, mér datt það strax í hug í seinustu viku að henni yrði hent fyrst út..Allir þeir sem þykjast ráða öllu verður hent út.
Þetta verður mjög spennó að fylgjast með þessu.
Dýrin alveg við hliðiná þeim, maður gat heyrt ljón öskra og sá gíraffa og alskyns dýr. Alltaf þurfa 2 að vaka.
Vatnið hefur aldrei verið jafn ógeðslegt..þetta er bara drullupollur og fólk var ælandi.
En það góða við þetta að það eru fullt af dýrum sem þau geta veitt, en samt ekki (þau mega ábyggilega ekki veiða dýr í útrýmingahættu)
Mig hlakkar mikið til í næstu viku og þetta verður skemmtilegra þegar maður þekkir nöfnin á öllum : )