Þar sem að það er ekki mikið að gerast í Survivor málum þessa daganna ætla ég að taka mér það bessaleyfi að tala aðeins um Murder in small town X.
Þessi þáttur fjallar um það að það eru nokkrar manneskjur fengnar til þess að flytja tímabundið í bæinn Sunrise en þar hefur verið framið einhver brutal morð og eiga þau að finna morðingjan. Morðinginn hefur gefið þeim upp 16 nöfn og eitt þeirra er morðinginn sjálfur, svo útilokar hann 1 nafn í hverjum þætti ef þau geta svarað einhverri spurningu rétt.

Mér finnst þessi þáttur vera hin besta skemmtun þó svo að fólkið viti vel að þetta sé allt feik þá er mjög mikið lagt í þetta og fólkið verður stundum alveg skíthrætt eins og þegar það þarf að fara “and play the killers game” það er algjör snilld…spooky shit.

Það er eins og virðist vera í öllum svona ríalítí þáttum ein helv… tík sem að engin þolir og í þessu tilviki er það Kirsten …shiiiiitt hvað hún fer í taugarnar á mér og flestum keppendunum líka þar sem hún hefur 3 sinnum verið kosinn að fara “and play the killers game” en þá á maður aðeins 50% líkur á því að snú aftur en alltaf kemur hún aftur…ég vona að hún drullist til þess að drepast í næsta þætti því hún fer í taugarnar á mér!

Svo eru nottla vangavelturnar um hver sé morðinginn og skiptir maður um skoðun í hverjum þætti liggur við …eins og stendur…hef ég ekki högmend!!

En eins og ég sagði áðan þá er þessi þáttur hin besta skemmtun og mæli ég eindregið með honum…
Nei engin undirskrift hjá mér