Eftirfarandi grein er skrifuð uppúr bíóblaðinu ….

Þó Tina hafi malað Colby í lok síðustu Survivor syrpu hefur keppnisandinn langt í frá yfirgefið þáttakendurna. Eftir að þáttunum lauk spruttu upp miklar rökræður um hver kvennanna yrði fyrst til að koma nakin fram á síðum karlatímarits fyrir frægðina. Helstu kandítatarnir voru taldir vera hin sívinsæla Jerri annar vegar Amber hin hlédræga hins vegar. Nú mun því svarað því karlatímaritið “Stuff” hefur myndað Amber, reyndar í bikiníi, og verður árangurinn sýnilegur í júlíhefti tímaritsins. Þeir sem elska að hata Jerri þurfa heldur ekki að bíða lengi því hún ráðgerir að sitja fyrir á síðum Playboy í náinni framtíð.

Þar hafiði það. Maður vissi nú að hin athyglissjúka Jerri myndi gera eitthvað svona til að halda öllum augum á sér, en Amber ?