Najai Turpin,R.I.P (Rétt umfjöllun varðandi það sem gerðist) Rakst ég á þessa frétt á heimasíðu XFM http://www.xfm.is/capone/indexinfo.php?n_id=12 og stendur eftirfarandi:

,,Gaurinn sem drap sig i contender
Hér er mynd af gaurnum *(Var mynd þarna hliðina á)* sem drap sig eftr contender nýja box raunveruleikaþáttinn á skjá einum hann hét Najai Turpin og skaut sig í hausinn fyrir utan æfingasal í bíl. Kærasta hans sat við hlið hans þegar atvikið átti sér stað þess má einnig geta að gæinn átti 2 ára gamla dóttur.''

Verð ég að segja að þessar upplýsingar eru rangar og ekki nákvæmar.

Hér er mín umfjöllun:

Najai Turpin framdi sjálfsmorð þann 14.febrúar 2005.Hann var 23ára. Honum var ávalt lýst sem mjúktalandi og kurteisum manni. Turpin unni yngri bróður sínum,systur,frænku og frænda eftir að móðir hans lést árið 2000.Ferill hans var eftirfarandi: 13 sigrar,1 tap og með 9 rothögg af þessum 13 sigrum.

Áður en hann komst í sviðsljósið í ,, The Contender'' þáttunum,þá vann hann byggingavinnu og um kvöldin á veitingastað í Fíladelfíu.

Snemma á mánudegi,þá skaut hann sig í höfuðið með sjálfvirku vopni (byssu) er hann sat í bíl sínum sem var lagður fyrir utan staðinn sem hann æfði á. Kærasta hans, Angela Chapple var nýkomin út úr bílnum þegar að Najai Turpin tók sitt eigið líf. Viku fyrir dauða hans,hafði Turpin tvisvar sinnum farið úr æfingabúðum vegna þess að hann gat ekki einbeitt sér að þjálfun sinni. Þó að Chapple hafði neitað að gefa út yfirlýsingar,þá lýsti hún yfir að þau Turpin hafi haft meiri ást en rifrildi. Turpin lét eftir sig 2ára dóttur sína, Anyae.

Megi þessi maður hvíla í friði,og ef ég á að vera hreinskilinn,þá á ekki að leyfa svona mönnum að deyja þó þeir geri það sjálfir,en hvað getur maður sagt annað en að þessi maður var snillingur,en eini ,,feill'' hans var að taka sitt eigið líf.

Summi kveður……..

(Heimildir: http://www.blogofdeath.com,NBC.com)