Jæja þá er komin enn ein þáttaröðin af hinum geysivinsælu þáttum The Bachelor. Þátturinn í gær var mjög spes að því leyti að það er komin ný manneskja, ný rós OG hann Jesse minn gerði meiriháttar mistök! Hvað annað þarf maður í raunveruleikasjónvarpi? ;)
Þannig er að nú er svokallaður “njósnari” meðal keppenda um hjarta piparsveinsins en sú manneskja er í raun besta vinkona Jesse sem ætlar að segja honum frá því hvernig henni líst á hinar stelpurnar og hvernig þær haga sér. Það eina sem mér fannst ekki nógu gott við njósnarann er að við fáum aldrei að sjá hver hún er! Það er alltaf móða fyrir andlitinu á henni þegar er talað við hana.
Nýja rósin var hin svokallaða “fyrstu kynni” rós, en þá rós átti sú stelpa að fá sem honum leist best á við fyrstu kynni. Þessa rós fékk stelpa sem heitir Trish og af myndum úr næstu þáttum að dæma þá verður heitt á milli þeirra þó allar hinar stelpurnar virðist hata hana!
Annars var þetta hinn allra besti Bachelor þáttur, loksins kominn einhver sætur í piparsveins sætið, ég var orðin óttalega þreytt á þessum ljótu greyum sem nokkrir *hömm Andrew og Bob* fyrrum piparsveinar hafa verið!
Mistökin sem Jesse gerði í þessum fyrsta þætti var að í rósa afhendingunni sagði hann vitlaust nafn við seinustu rósina og gaf einhverri stelpu rós sem hann ætlaði að senda heim. Það var bara lagað með því að henni var boðið með og líka stelpunni sem hann ætlaði að bjóða en þetta var samt örugglega mjög vandræðalegt.
Mér líst vel á komandi þáttaröð The Bachelor og hvet sem flesta til að fylgjast með!