Jæja

Seinasti Bachelorette þátturinn var á miðvikudaginn seinasta, 26.janúar.

En áður en hún valdi hverjum hún vildi giftast þá fengu Ian og Matthew að fara einn í einu heim til Meridith og heimsækja fjölskyldu hennar.

Það gekk vel hvor fyrir sig. Mér fannst samt Matthew standa sig betur (hélt með honum)
Þeir fengu báðir yfirheyrslu en þeir svöruðu vel og hreinskilin svör.

Matthew spurði Meredith eftir hverju hún vonaðist að þessu loknu og Meredith sagði að henni langaði að fá hring.

Ian og Matthew fengu einn lokaséns við að heilla hana upp úr skónum. Þeir fengu eina nótt með Meredith [Ian einn og Matthew einn]

Nóttin með Ian var: Fyrst af öllu þá brenndist pizzan [maturinn, þau elduðu sjálf] Og þau spjölluðu og það endaði með kelerí. Svo þurfti hún að kveðja.

Nóttin með Matthew var: Hann hrósaði henni fyrir hvað foreldrar hennar voru frábærir og sagði að þeim líkaði mjög vel við hann. Þau töluðu saman og endaði auðvitað með keleríi og svo þurfti hún að kveðja.

En þegar kom að því að velja var hún: ég elska þá báða, ég vil ekki velja, nei ég geri það ekki, ég er dauðhrædd.

Matthew var kominn með hring

Ian var kominn með hring

En þeir sögðu eitthvað sitt af hverju t.d. ég vona að hún horfi í hjarta mitt og augun og ákveði.[Í limmosíunni]

En skrýtnasta var að þeir voru með alveg eins hring! Hún hafði skoðað áður hringa og leist vel á þennann, sannur fyrir prinsessu [Prinsesscut]

Fyrir rósafhendinguna þá talaði hún við þáttstjórnandann, hann sagði að Ian og Matthew kæmu hvor í sínu lagi og þeir vissu ekki hvor væri á undan og kannski ætluðu þeir að biðja hennar.

En að lokum valdi hún ,hún valdi… Ian!

Ohh ég hélt með Matthew hún byrjaði með hvað hann væri æðislegur enn eitt væri að og það var að hún berði sterkari tilfinningar í garð annars.

Þá varðandi hvort Ian vildi giftast þegar hann kom úr limmósíunni beið Meredith eftir honum og hann… bað hennar!

Ég verð að játa að þau eru sæt saman en Matthew fór! En Meredith og Ian voru svaka hamingjusöm!

——–
Takk fyrir mig
he's very sexy