Það er alltaf einn krókódíll sem liggur á meltunni þarna í ánni. Hvernig þora þau að baða sig í vatninu með alla snákana og þennan krókódíl og öll hin aðskotadýrin þarna ? Það hlýtur að vera búið að hreinsa þessi vatnasból upp að vissu marki og koma fyrir einhverjum netum til að halda þeim frá, og ef að það skildi koma fyrir að það yrði ráðist á einhvern þá er örugglega einhver með skotvopn til að tryggja að það verði ekki blóðbað. Persónulega myndi ég ekki hætta mér út í gruggugt vatnið og ekki vitandi hvað er undir yfirborðinu, eða þá að vera að ganga einhversstaðar og vera að passa mig að stíga ekki á snák. Þetta eru bara hetjur.
Hvað finnst ykkur ?