Ég fer nú bráðum að fá áhyggjur vegna þeirra.
Sum þeirra líta út einsog lifandi beinagrindur,
miðað við hvernig þau litu út þegar þau komu.
Rosalegt vandamál með mat og engin veiði.

Ég er að reyna rifja upp Survivor 1 og ég
bara man ekki eftir neinu svona alvarlegu!

Tína er með bauga og poka undir augunum,
Elisabeth á erfitt með að tala afþví hún
er svo máttlaus, Rodger mjööög þreytulegur,
og miðað við atriðin sem voru sýnd úr næsta
þætti, sýna þessir erfiðleikar sig mest í skapi
Colby´s, en utan á honum. (Þori ekki að segja
meira um það, ef einvherjir eiga eftir að sjá
þáttinn sem var í kvöld.)

Man einhver, voru svona erfiðleikar í Survivor 1 ?
Ég man bara eftir slæmum móral útí bera hommann
en minnir að allt hitt hafi verið einsog í sögu.

Ég tel klukkustundirnar niður þar til næsti þáttur
kemur af spennu, en vorkenni þeim jafnframt alveg
svakalega!