Jæja. . . þá er Amber horfin.
Þetta var nú frekar fyrirsjáanlegt. Hún einangraðist eftir að Jerri fór. Amber talaði samt eitthvað um að hún og Tina væru orðnir vinir en greinilega ekki nógu og góður þar sem hún fékk atkvæði frá Tinu.
En hvað gerist í næsta þætti ?
Ég held að Colby, Tina og Keith séu alveg örugg. Þau eru með yfirhöndina og myndu gera stór mistök með því að kjósa einn úr “sínu” liði. Þau kusu nú Amber út þótt hún hefði tilheyrt gamla Ogakor en það var eiginlega, held ég, bara vegna þess að þau vildu ekki kjósa Elizabeth né Roger. Amber var einnig dáldil ógnun eins og sást í The Reward Challenge þar sem hún fylgi fast á hælum Colby. Mér brá nú þegar ég sá að Colby kaus Roger, en ekki Amber.

Þeir sem horfðu á brotið úr næsta þætti sjá að Colby og Keith eru eitthvað ósáttir við hvorn annan. Það gæti hugsast að Keith eða Colby fengi hina í lið með sér til að kjósa hinn burt. Mér finnst það mjög ólíklegt, en hver veit hvað gerist í leik eins og þessum ?

Ég giska að annaðhvort fari Elizabeth eða Roger. Þau eru mest líklegust vegna þess að þau tilheyrðu gamla Kucha. Elizabeth sýndi krafta sína í The Immunity Challenge. Hún var ein eftir á móti Colby. Persónulega vona ég að Elizabeth haldi þetta út og taki allar Immunity Challenge-in. Ef það yrði svo í næsta þætti að hvorki Roger né Elizabeth nái friðhelginni þá mun örugglega Roger fara. Hann er nú skemmtilegur maður en Elizabeth er meira samstíga hinum (þetta er bara mitt álit)………

Hver haldið þið að fari næst ?
Colby ?
Tina ?
Keith ?
Elizabeth ?
Roger ?