Núna var Amber kosin burt, sem ég held að flestir bjuggust við, ég bjóst allaveganna við því. Hún var ekki mjög mikið með hópnum og átti eiginlega enga “vini” innan flokksins. Það kusu hana allir nema Colby sem kaus Rodger og Amber kaus hann líka. Svo vann Colby friðhelgis keppni og verðlauna keppnina. Svo eyðulaðit campið þeirra út af því það flæddi yfir þau. Svo fóru grjónin með flóðinu en þau sáu þau svo í ánni og Tina synti og náði í þau. Ég hef ekki hugmynd um hver verður kosinn burt næst, en það gæti verið Rodger, en hann er ekki það mikil ógnun fyrir hina í hópnum þnnig að það væri líklegra ef það væri Colby eða einhver, því Ogakor sambandið virðist hafa rofnað, þar sem þau kusu ekki öll eins. Ég tel mestar líkur á að Colby eða Keith fari næst. Hvað haldið þið?