Af hverju getur Skjár einn ekki sýnt Survivor þættina hér bara nokkrum dögum eftir að þátturinn er sýndur úti Bandaríkjunum, þá meina ég svona 3-6 dögum eftir.
Sýn sýnir þætti frá David Letterman kvöldið eftir að hann er sýndur í Bandaríkjunum. NBA tilþrif þættirnir eru sýndir hér svona 3 dögum eftir að þeir eru sýndir út í Bandaríkjunum. Með Leno er það eitthvað svipað. Af hverju ekki Survivor?

Þessi þáttur er svo vinsæll að maður verður að passa sig mjög vel til að vita ekki úrslitin fyrirfram.