Jæja eins og sést þá hef ég mikinn áhuga á america´s next top model enda er þetta uppáhaldsþátturinn minn.
Mér finnst að vísu synd að Anna var kosin úr í fyrsta þættinum því að hún gæti verið fyrirsæta sem gæti gefið konum og stúlkum meira sjálfsálit. Hún var ekki feit og ekki mjó bara svona venjuleg kona.
Núna eru þrjár stelpur eftir: Mercedes, Shandi og Yoanne. April var kosin úr í seinasta þætti.
Mér finnst Shandi vera mjög ljót án meiksins og mér finnst ljótt hversu horuð hún er. Hún mætti alveg vera með daldið meira hold á beinunum. Svona horuð er hún bara eins og stirður spítukarl og mjög rengluleg.
En hún hefur tekið heilmiklum framförum.
Ég held rosalega mikið með Yoanne og finnst hún vera 150% að leggja sig fram.
Tyra sagði í fyrsta þættinum að til að geta orðið fyrirsæta þá þyrfti fyrirsætustarfið að vera líf þeirra.
Það á við Yoanne. Hún hugsar ekkert nema tíska, fyrirsætur, tíska. Mér finnst líka aðdáunarvert að hún missti 20 kíló til að geta þetta.
Ég dauðöfunda Mercedes af hárinu hennar því mér finnst það vera svo ÓGEÐSLEGA flott svona krullað. Hún er einhvað svo exotic. Hún hefur mestu náttúrulegu fegurðina af stelpunum.
April gerði sömu mistök og Camille. Hún hugsaði allt of mikið. Hver einasta hreyfing var vandlega úthugsuð. Hún þurfti bara að læra að slappa pínu af.
Ég held annars að hún eigi eftir að tengjast fyrirsætuheiminum einhvað meira því það var einhver neisti á milli hennar og Nigel Barker (líklega vitlaust skrifað).
Það sem gerðist í síðasta þætti var að einhverjir strákar komu í hálfgert partí til stelpnanna.
Yoanna var geðveikt ánægð enda var nornin (Camille) á bak og brott. Yoanna átti engann kærasta þannig að hún byrjaði strax að kyssa einhvern gæja.
Shandi brást hinsvegar trausti kærastans og svaf hjá gaur. Hún hlýtur að eiga frábærann kærasta því hann fyrirgaf henni það. Ég varð ógeðslega hissa, ég hélt að hann myndi segja henni upp strax. Mér fannst bara svo fyndið þegar hann sagði O my god í símann því hann hljómaði eins og gömul amma í taugaáfalli (veit að ég á ekki að hlæja að svona hlutum).
April og Mercedes slepptu að kyssa stráka en mér fannst skrítið af Mercedes hafi ekki reynt við neinn því að hún á engann kærasta (sem mér finnst mjög skrítið því hún hlýtur að vera með heila hjörð af gaurum slefandi á eftir sér).
Yoanna vaknaði allavegana hamingjusöm næsta morgun en Shandi vaknaði hágrenjandi með nagandi samviskubit.
Hún sagði kærastanum allt og hann fyrirgaf henni.
Þær áttu að búa sér sjálfar til stíl og Shandi stóð sig best að mati Fairchild gaursins (sem ég hef enga hugmynd um hver er).
Svo þurftu þær að vera á einhverjum girl-on-girl myndum. Yoanne og Shandi voru saman á mynd og Mercedes og April. Mér fannst myndin af April og Mercedes ekki flott en mér fannst mynd Yoanne og Shandi frábær nema mér fannst Shandi vera annars hugar á henni. Yoanne var snilld á henni, pósið var algjör snilld.
Það fór svo á endanum að April var kosin úr.
Ég spái að úrslitin verði svona:
3. Mercedes.
2. Shandi.
1. Yoanne.