Litla sæta ósjálfstæða Amber er nú algjörlega ein á báti finnst mér eftir að tíkin Jerri var kosin burt og á finnst mér ansi mikið líklegt að hún verði fyrir valinu í næstu kostningu. Amber hefur ekki leikið leikinn nægilega gáfulega að mínu mati þar sem hún var algjörlega límd við Jerri og eignaðist enga aðra vini en hana og svo þegar hún hverfur þá er hún algjörlega ein á báti. Í síðasta þætti leit í smá stund útfyrir að hún og Elisabeth væru að tengjast eitthvað en það kom svo í ljós að þau bönd voru ekki mjög sterk því Elisabeth kaus hana svo á þinginu. Þá er í rauninni enginn eftir sem að hún á sér að og finnst mér ansi líklegt að hún fari næst …en eftir það held ég að leikar verði mjööög spennandi og tvísínt hverjir fara að tinast í burtu …þó svo að margir hafi spáð að Roger fari að fara hef ég það á tilfinningunni að hann hafi allt það sem til þarf til þess að vinna….nema kannski það að það getur verið erfitt fyrir hann að vinna keppnir vegna aldurs…
Nei engin undirskrift hjá mér