Jæja nú var Nick kosinn burt, sem átti eiginlega að vera kosinn burt síðast en vann friðhelgi. Ég bjóst reyndar við því að Amber yrði kosin burt, en það gerðist ekki. Það yrði líka heimskulegt af ex-ogakor fólkinu, því þá myndu þau ekki vera með yfirhöndina lengur. Nick var líka orðinn frekar þreyttur, búinn að veikjast tvisvar og með verk í bakinu eða eitthvað, svo var hann frekar latur. Svo fengu þau meiri mat en skýlið var tekið af þeim í staðinn, og þau fá örugglega tækifæri í næsta þætti að vinna það aftur. Ég held að í næsta þætti verði Amber kosin burt, því hún á ekki marga “vini” innan ættbálksins, eftir það verða örugglega Elizabeth og Rodger send burt, það er ef ogakor-fólkið stendur ennþá saman, en við verðum víst bara að bíða og sjá……..