Hver átti skilið að vinna Survivor 1 ? Eins og allir vita þá vann Rich . . . . . . .
Mig langar bara að vita, hver fannst ykkur að hefði átt að vinna ?
Þetta var tæpt hjá Kelly og Rich, vote-ið hennar Sue skipti öllu máli í endann, eins og hún vildi.
Af öllum hópnum fannst mér Jenna best. Hún var svona fjörug og skemmtileg…. allt annað en Jerri. Hún fékk vote frá Richard, Susan, Sean og Rudy í 9unda þætti.
Þar gerði Kelly þau mistök að kjósa Sean. . . en ekki Rich. Hefði hún kosið Rich hefði orðið jafntefli milli hans og Jennu og hver veit hvað hefði getað gerst !
Ef ég á ekki að velja hver var skemmtilegastur heldur Duglegasti og Vinnuharðasti Survivorinn þá verð ég að segja Rudy. Hann var leiðinlegur en duglegur við að skipa öðrum við að vinna og vinna auðvitað sjálfur.
Mér fannst Rich ekki eiga skilið að vinna. Gengur nakinn um ströndina á afmælisdeginum sínum, spikfeitur. Gerði nú voðalítið.
Eina ástæðan fyrir því að hann var ekki kosinn fyrr var að hann var svo lítil ógnun við hina…. þau biðu of lengi með að kjósa hann burt.

Jæja….. hver finnst ykkur eiga vinningin skilin ?