Þó ég hafi verið ánægður að Jerry var loksins kosinn í burtu þá fannst mér þetta rosalega heimskulega kosið hjá Colby og félögum. Ég meina þau eru að spila upp á mjög mikla peninga og gátu ekki beðið í nokkra daga með að senda hana burt. Fyrir þáttinn þá var Colby, Tina og Keith með fullkomna stöðu og virtist ekkert stoppa það að þau færu í final 3, þ.e. Jerry og Amber héldu að Colby myndi kjósa með sér og þau færu í final 3, þannig að eina sem þau þurftu að gera var að halda áfram að kjósa Nick, Elisabeth og Roger út og þegar það væri búið þá væri minnsta málið að senda Jerry og Amber heim. En hvað gerðu þau núna? Þau sendu Jerry heim, sem mér fannst alveg rosalega vitlaust (nema einhvert snilldarplan liggi þar að baki, sem ég efast um að gæti verið betra en hitt planið), núna er staðan þannig að Amber stendur ein á báti því hún og Jerry voru sviknar og hvað á hún eftir að gera hún á eftir að reyna fara í samflot með Nick, Elisabeth og Roger, og þau eiga eftir að taka því fagnandi því nú eru þau allt í einu komin með yfirhöndina í leiknum 4 á móti 3 og geta geta sjálf farið í final 3. Ég veit það ekki, það læddist að mér rosalega sterkur grunur um að orðrómurinn um handrit væri sannur, þetta var of heimskulega kosið.

Segið mér hvað ykkur finnst :)

kv. Weird Al.