Þrautirnar Hvað af þessum þrautum hefði maður getað gengið í gegnum. Persónulega held ég að ég hefði ekki getað borðað þessi skordýr sem þau þurftu að kyngja(jukk). Allt hitt var svona eðlilegt þeas hlaupa með eitthvað eða fylla eitthvað. Hinsvegar er spurning með þrjóskukeppnina( þar sem þau stóðu á staur í marga tíma). Keith var í einhverja 10 tíma úff. Maður hefur nú verið á tónleikum þar sem maður er orðinn þreyttur í fótunum eftir smástund á því að standa kyrr en 10 tímar( ekki sjens). Hvað finnst ykkur hefðuð þið getað gleypt þessi skordýr og staðið á staur í 10 tíma?