Í kvöld beið ég spenntur eftir þættinum sem að við urðum að vera án í síðustu viku vegna mistaka. Ég var farinn að hlakka verulega til að sjá hver yrði látin fara í kvöld. Ég var að vona að Jerry yrði látin fjúka og að það yrði einvher spenna í þessum þætti á ný. Ekki að Kucha yrði bara útrýmt eins og það hefur verið að stefna í.
En nei… svo heppinn var ég ekki. Í kvöld var sýndur yfirlitsþáttur um það sem gerst hefur hingað til. Reyndar var það fínt því að ég horfði á þennan þátt með félaga mínum og hann varð alveg heillaður (hafði ekkert fylgst með hingað til) en ég varð fyrir vonbrigðum. Ég er búinn að bíða í tvær vikur eftir að næsti aðili yrði látin fara og þarf greinilega að bíða í eina viku í viðbót.

AARRRRGGGG….. Jæja… maður getur svo sem látið sig hlakka til í eina viku í viðbót.

Þar til næst,

Xavie