Reglurnar Sá sem sigrar í þættinum fær 1.000.000 dollara. Hinir fá samt huggunarverðlaun sem er peningaverðlaun. Sá sem dettur fyrst út fær 2.500 dollara og svo alltaf meira eftir því hversu lengi þú ert. Sá sem lendir í öðru sæti fær svo 100.000 dollara.
Keppendum er refsað ef þau gera eftirfarandi atriði( það er að segja þau eru rekin úr keppni án peningaverðlauna):
1. Það má ekki gera áætlun um að deila milljóninni með einhverjum öðrum keppanda. Aðeins einn keppandi má fá verðlaunin.
2. Það má enginn fara inn á svæði framleiðandanna og myndatökuliðsins.
3. (þetta finnst mér fyndnast) Það má enginn brjóta nein lög þarna, þá er verið að meina amerísk lög og áströlsk lög, þannig að það er bannað að stela og drepa fólk( af græðgi) :)
4. Það eru allir skyldugir til að mæta á flokksþingið og á áskorunar keppnina. Ef einhver mætir ekki þá er hann rekinn.
5. Keppendurnir þurfa að sjá vel um umhverfið og þeir mega ekki skaða gróður( halló þau hafa nú höggvið niður tré fyrir skýlin sín er það ekki?). Þeir mega ekki skilja eftir rusl á jörðinni.
6. Það má ekki beita neinu ofbeldi eða hamstra mat( hahahah það má bara beita andlegu ofbeldi í staðinn)

Jæja þá eru formlegu reglurnar taldar upp, ég vona að fólk sé upplýst.